Breiðumýri
225 Álftanes
Sími 550 2340 - Gsm 821 5018
Minnsta letur
Miðstærð leturs
Stærsta letur
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
Atburðadagatal
Ýmsar myndir
Skip Navigation LinksForsíða
Prenta


 

30.janúar 2012

 

                              Starfsdagur

 

Skertur starfsdagur verður miðvikudaginn 1.feb frá 8.00-10.00.  Þann daginn opnar skólinn klukkan 10.00.  Sama á við þann 1.mars og 2.apríl.  En þetta er einn af þeim 5 starfsdögum sem við fáum og er bútaður niður í fjóra tveggja tíma fundi.  Einn af þessum 4 dögum var í okt.

 

                 Kær kveðja

                 Ragnhildur Skúladóttir leikskólastjóri.

 

 
26. janúar 2012

Ófært að Leikskólum

Vegna ófærðar hafa starfsmenn leikskólans ekki komist til vinnu og eru foreldrar beðnir um að fara sér hægt og kynna sér aðstæður áður en haldið er út. 

 

26.janúar 2011

                                  Sumarfrí

 

´Sumarfrí leikskólanna er frá og með 4.júlí til 8. ágúst.  Opnum aftur fimmtudaginn 9.ágúst.

 

                               Kveðja

                                Ragnhildur Skúladóttir leikskólastjóri.

**********************************************************************

16.01.2012

 

Föstudaginn 20.janúar frá kl 8.00-10.00 verður pabba-og afadagur.  Þann daginn verður við með þorrablót leikskólans og ætlum að bjóða í þorramorgunverð þar sem í boði verður smakk af þorramat.

Vonumst til að sem flestir afa og pabba sjái sér fært um að kíkja til okkar.

 

                              Kveðja Starfsfólk.

 

 

*************************************************************************

 

                                                           

 

 

16.12.2011

                                    Jólaball

 

Jólaball Heilsuleikskólans Holtakots var í dag og var mikill gleði og mikið gaman. Gengið var í kringum jólatréð og fengum við vaska sveina í heimsókn sem við erum mikið þakklát fyrir.  Einnig var hann Bjartur Logi organisti Bessastaðasóknar okkur til halds og trausts við sönginn.  Erum við afskaplega þakklát fyrir þennan flotta góða hóp sem við erum svo heppin með að hafa hér í kringum okkur í Sveitarfélaginu.

 

Mánudaginn 19.des fara elstu börn leikskólans ( Hlið) á helgileik út í Álftanesskóla en fjórði bekkur hefur boðið okkur á þá sýningu árlega og er það alltaf jafn skemmtilegt.

 

Fimmtudaginn 22.des fara börnin á Hliði svo á Sívertsensafnið í Hafnarfirði og á kaffihús.  Þau ætla svo að rölta um Hafnarfjarðarbæ og skoða jólaljós og fleira skemmtilegt.

 

Starfsdagur - við viljum svo minna á starfsdaginn þann 2. janúar 2012 og er leikskólinn lokaður þann daginn.  Við opnum svo aftur 3.jan 2012.

 

Starfsfólk  Holtakots óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsælt nýtt ár. Þökkum það liðna og hlökkum til að fara inn í nýtt skólaár með svona flottum hóp.  Hafið það sem allra best um hátíðina.

 

                      Jólakveðja

                      Starfsfólk Heilsuleikskólans Holtakots.

 

 

*************************************************************************

 

 

29.09.2011

 

Dótadagur og starfsdagur.

Á morgun föstudaginn 30. september er dótadagur í leikskólanum, viljum við minna að að merkja dót barnanna.

Mánudaginn 3. október er starfsdagur og opnar leikskólinn kl 10.00 þann daginn.

Næstu starfsdagar eru svo:

11.nóvember - allur dagurinn - lokað

2.janúar - allur dagurinn - lokað

1.febrúar - opnar klukkan 10.00

1.mars -opnar klukkan 10.00

2.apríl -opnar klukkan 10.00

29.maí - allur dagurinn -lokað

 

Kveðja

Starfsfólk Heilsuleikskólans Holtakots.

 

 

************************************************************************

 

26. september 2011 

Skólamjólkurdagurinn.

Miðvikudaginn 28. september 2011 er tólfti skólamjólkurdagurinn sem haldin er hátíðlegur víða um heim. Það er stofnun Sameinuðu þjóðanna FAO sem hvetur til hátíðarhalda á þessum degi og á Íslandi er haldið upp á hann undir kjörorðunum "Holl mjólk og heilbrigðir krakkar".

Markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins vill vekja athygli barna , foreldra og starfsfólks skóla og leikskóla á mikilvægi mjólkur í daglegri fæðu barnanna. Þeir skólar sem áhuga hafa að taka þátt í þessum degi með þeim fá mjólk (1/4 pakkningar )sendar í skólana til að bjóða börnunum upp á þann daginn. Við hér í Holtakoti höfum ákveðið að taka þátt í þessum degi Sameinuðu þjóðanna og fáum þvi senda mjólk í boði Mjólkursamsölunar.

Kveðja

Ragnhildur Skúladóttir

Leikskólastjóri.

 

Minnum á starfsdaginn 9.september þann dag er leikskólinn lokaður.

 

 

29.08.2011

 

                         Fundarboð 

 

Aðalfundur Foreldrafélags Heilsuleikskólans Holtakots verður haldinn þriðjudaginn 13. september klukkan 17:00 í sal leikskólans.

Dagskrá:

  • reikningar lagðir fram
  • farið yfir störf félagsins frá síðasta aðalfundi
  • kosning nýrrar stjórnar
  • önnur mál

 

Athugið að við óskum eftir tveimur til þremur nýjum meðlimum í stjórn, þ.á. m gjaldkera, þar sem núverandi gjaldkeri lætur af störfum eftir aðalfund og tveir aðrir stjórnarmeðlimir munu láta af störfum næsta haust.  Æskilegt er að nýjir stjórnarmeðlimir séu af MÝri eða Seylu.

 

Fjölmennum og látum málefni leikskólans og barnanna okkur varða.

 

                                                     Stjórnin.